Pensill

 Var að finna nokkur ljóð eftir mig inni á ljod.is sem ég gerði fyrir 20 árum

🙂 gaman að sjá svona eftir á hvernig manni leið og hvað maður var að hugsa, hér er eitt af þessum ljóðum eða hvað þetta á að kallast ❤
Pensill
Pensilinn ég dreg eftir þér
finnst þér ekki notalegt
að láta strjúka þér
þennann dag sem annan
við höfum hvort annað
ég stundum mér gleymi
að þú ert það sem ég hef
til að styðjast við nótt sem dimmann dag
ég myndina geri hvernig sem fer
veit ég
að sálina mína þú berð
þegar ég ekki hér verð
myndina þau skoða
og finna von og doða
ást þau finna
þegar þau sja að alla mína
daga fékkstu fyrir því að finna
hvað sem á mina daga fékk að draga
lífið þú vekur
þegar fólkið eftir þér tekur
skoðar og skoðar ástina í þér frá mér
sem aldrey var sóuð hér

Ummæli