Mig dreymir oft þessa stúlku um
Þetta er dóttir mín
Sem þessi draumur er um
Við búum húsi í
Með stórum garði
Sem blómin blómstra í
Uppi á hæðinni
Með svaka útsýni
Við eigum hunda tvo
Sem elska að leika sér
Hestarnir eru okkar líf
Þú temur þá áður en þú selur þá
Þú átt bróðir hér, sem býr með þér
Hann elskar þig, tólf ára hann er
Hann er sonur minn og hann er besta skinn
Við förum saman í reiðtúra
Og veltum okkur grasinu í
Þessi sveita fílingur
Ég fíla hann svaka vel
Ég elska þetta líf
Ég vildi að við, værum eylíf
Það væri draumur einn
Ef þetta líf
Væri ekki draumurinn
Og við þyrftum ekki að vakna um sinn
Höf : Rósa Björk Kristjánsdóttir
Ljóð um mig og börnin mín byggt á draumi
Ummæli
Skrifa ummæli